Grunnupplýsingar
Stærðir: 1–2 (3) 4 (5) 6 (7) 8 (9) 10 (11–12) ára
Yfirvídd: 69 (72) 74 (76) 80 (84) 88 (92) 95 (99) cm
Lengd á bol að aftan að stroffi frátöldu: 36 (38) 42 (43) 45 (48) 49 (50) 52 (54) cm
Prjónfesta: 10 x 10 cm = 21 lykkja og 28 umferðir slétt prjón á 4 mm prjóna
Garn: Pura Lana frá Gepard
Litur A (aðallitur): 150 (200) 200 (200) 250 (250) 250 (250) 300 (300) gr (50gr/115m)
Litur B (þríhyrningar): 50 (50) 50 (50) 50 (100) 100 (100) 100 (100) gr (50gr/115m)
Litur C (rendur): 50 (50) 50 (50) 50 (50) 50 (50) 50 (50) gr (50gr/115m)
Litir á forsíðupeysu: Litur A: 730 Midnatsbla, litur B: 101 Rahvid, litur C: 818 Stövet forar.
Prjónar
Hringprjónar: 4 mm (40 og 60 eða 80 cm) og 3,5 mm (40 og 60 eða 80 cm)
Sokkaprjónar: 4 og 3,5 mm (eða langir hringprjónar fyrir magic loop aðferðina)
Stærðir
Stærðirnar sem eru gefnar upp í uppskriftinni eru málin á peysunni sjálfri. Við val á stærðum er mikilvægt að skoða yfirvíddina. Þar sem peysan er prjónuð ofan frá er auðvelt að lengja eða stytta ermar og bol. Mikilvægt er að gera prjónfestuprufu svo peysan passi örugglega á barnið.













