Alfífa hettutrefill
Byrjað er framan á hettunni með því að gera snúrukant (e. I-cord). Eftir það eru teknar upp lykkjur meðfram snúrunni og kollurinn á hettunni prjónaður frá enni fram og til baka með hálfklukkuprjóni. Þegar réttri lengd á kolli er náð eru teknar upp lykkjur meðfram hliðum kollsins og þær sameinaðar lykkjunum aftan á kollinum. Þessar lykkjur eru prjónaðar fram og til baka með hálfklukkuprjóni niður fyrir eyru eða þar til komið er að því að skipta þeim í tvennt til að prjóna armana á treflinum.
Stærðir: Lengd arma frá kolli er um 120 cm.
Prjónfesta: 10 x 10 cm = 14 L og 30 umf hálfklukkuprjón á 6 mm prjóna.
Garn: 200 gr Puno frá Gepard eða Snefnug frá Camarose eða Brisa frá BC Yarn.
Hringprjónar: 6 mm (60 – 80 cm).















