Sólskinstoppur

$8,66

Sólskinstoppurinn er sjötta uppskriftin í Sólskinslínunni frá Vindu. Upprunalega Sólskinspeysan var hlý ullarpeysa með munstri sem minntu á geisla sólarinnar. Sólskinstoppurinn er hinsvegar tilvalinn til að nota á íslenskum sumardegi, nú eða á djamminu!

Sólskinstoppurinn er prjónaður ofan frá og niður. Fram- og bakstykkið eru prjónuð í sitthvoru lagi fram og til baka. Á sama tíma eru sólargeislarnir myndaðir með því að færa lykkjur óprjónaðar á milli prjóna. Þegar komið er niður fyrir handveg eru stykkin tengd saman og bolurinn prjónaður í hring.

Uppskriftin að Sólskinstoppnum kemur í níu stærðum. Málin sem eru gefin upp segja til um stærðirnar á flíkinni sjálfri og ég hvet fólk til að skoða þau frekar en nöfnin á stærðunum. Það er ekki gert ráð fyrir mikilli hreyfivídd í uppskriftinni en það er þó alltaf smekksatriði hversu víðar við viljum hafa flíkurnar. Þegar þið veljið stærð er það yfirvíddin er mikilvægust en hún segir til um málin yfir brjóstkassann. Lengd á bol og hlýrum er alltaf hægt að breyta og auðvelt er að máta toppinn jafnóðum þar sem hann er prjónaður ofan frá og niður. Það getur verið skynsamlegt að bæta við garni ef þið hyggist lengja toppinn mikið.

Grunnupplýsingar
Size: (XS) S (M) L (XL) 2XL (3XL) 4XL (5XL)
Bust: U.þ.b. (84) 93 (99) 106 (113) 120 (133) 143 (155) cm
Lengd á bol frá hálsmáli: u.þ.b. (48) 51 (54) 57 (60) 63 (66) 69 (72) cm
Prjónfesta: 10 x 10 cm = 24 lykkjur og 38 umferðir slétt prjón á 3,5 mm prjóna

Yarn
Eddugarn frá Garnbúð Eddu: (150) 150 (200) 200 (250) 250 (250) 300 (350) gr
Bambus/hör garn frá Hexhex (150) 150 (200) 200 (250) 250 (250) 300 (350) gr

Bolurinn á forsíðunni er úr Eddugarni í litnum Kólusinn.

Needles
Hringprjónar: 3 mm (40 cm) og 3,5 mm (40 og 80 cm)
Sokkaprjónar: 3 mm