Sólskinshúfa

$7,07

Sólskinshúfan er húfa sem passar við Sólskinspeysu eða bara hvað sem er!
Eins og í öðrum Sólskinsuppskriftum eru geislar á húfunni sem minna á yljandi geisla sólarinnar.

Uppskriftin er í átta stærðum, fimm barnastærðum og þremur fullorðinsstærðum. Athugið að barnahúfurnar eru prjónaðar með öðru garni og prjónum en fullorðinshúfurnar, prjónfestan er því ekki sú sama. Hægt er að nota ýmist einn þráð eða tvo í báðar útgáfurnar. Gefnir eru upp nokkrir garnmöguleikar fyrir húfurnar en hægt er að nota alls konar annað garn sem hentar prjónfestunni. Bæði barna- og fullorðinshúfuna er hægt að prjóna ýmist með uppábroti eða einföldu stroffi og hægt er að prjóna eyrnaskjól og bönd á þrjár minnstu stærðirnar.

Nánari upplýsingar neðar á síðunni

Sólskinshúfan er prjónuð frá stroffi og upp á kollinn þar sem lykkjunum fækkar smám saman. Geislarnir á húfunni eru myndaðir með því að taka lykkjur óprjónaðar á milli prjóna með því að stinga prjóni aftan í lykkjurnar og færa þær þannig yfir.

Grunnupplýsingar

Stærðir: 3–6 mán (6–12 mán) 2–4 ára (5–7 ára) 8–9 ára (S) M ( L)
Ummál: u.þ.b. 35 (38) 42 (46) 46 (48) 48 (52) cm

Barnahúfa (stærðir 3 mán – 9 ára)
Prjónar: 3,5 mm, 30–40 cm hringprjónn og 3,5 mm sokkaprjónar
Gauge: 10 x 10 cm = 26 L og 36 umf á 3,5 mm prjóna

Garnmöguleikar fyrir barnahúfu
Ef notaður er einn þráður: Húfa með mjóu stroffi: 50 gr [með uppábroti: 50 (50) 50 (100) 100) gr] Pernilla frá Filcolana eða Semilla GOTS.
Ef notaðir eru tveir þræðir: 50 gr Merino frá Knitting for Olive eða Arwetta frá Filcolana
eða
Sunday frá Sandnes eða Yaku frá CaMaRose prjónað með 25 gr af Soft silk mohair frá
Knitting for Olive eða Tynn silk mohair frá Sandnes eða Midnatssol frá CaMaRose eða
Alpaca 1 frá Isager eða Alpakka fölgetrad frá Sandnes eða Alva frá Filcolana.

Fullorðinshúfa (Stærðir S, M og L)
Prjónar: 4 mm, 40 cm hringprjónn og 4 mm sokkaprjónar
Gauge: 10 x 10 cm = 21 L og 30 umf á 4 mm prjóna

Garnmöguleikar fyrir fullorðinshúfu
Ef notaður er einn þráður: 100 gr Peruvian highland wool frá Filcolana eða POP merino.
Ef notaðir eru tveir þræðir: Húfa með mjóu stroffi: 50 gr [með uppábroti: 50 (50) 100) gr] Pernilla frá Filcolana eða Semilla GOTS prjónað með 25 gr Silk mohair frá Filcolana eða Soft Silk mohair frá Knitting for Olive eða Alpaca 1 frá Isager eða Midnatssol frá CaMaRose eða Tynn silk mohair frá Sandnes.